Verðlaunamynd sýnd í Sauðárkróksbíói

Myndirnar Yfirborð eftir Stefán Friðrik Friðriksson og Þjófur, þjófur eftir Ragnar P. Pétursson verða sýndar í Sauðárkróksbíói um helgina.

Yfirborð er tuttugu mínútna stuttmynd sem að vann aðalverðlaun Kvikmyndaskóla Íslands á dögunum. Myndin Þjófur, þjófur fékk einnig gríðargóðar viðtökur á sömu sýningu en hún er tíu mínútna gamanstuttmynd.

Allir eru hvattir til að mæta og er það Sveitafélagið Skagafjörður sem býður öllum frítt á þessa sýningu.

Sýningar verða:
á laugardaginn 24. maí kl. 17:00,
á sunnudaginn 25. maí kl. 20:00.

3 svör við “Verðlaunamynd sýnd í Sauðárkróksbíói”

  1. Ingvi Hrannar

    Snilld, það væri gaman að fara og sjá þetta aftur! Alveg þess virði!

  2. do

    já til hamingju með afmælið, við sjáumst þá á sunnudag.

  3. Tungan

    Er ekki hægt að hafa sýningu í borginni bráðlega. Ég held að það myndi vekja lukku ;)