Íslandsmeistarar

Þrymur unnu Molda-Gnúp í úrslitaleik U-deildarinnar í körfubolta í gærkvöldi. Eftir sveiflukenndan og spennandi leik náðu Þrymsmenn að merja
sigur á lokasekúndunum með miklum sigurvilja og góðri liðsheild.

U-deildin hefur staðið yfir frá því í nóvember og spilað var í 2 riðlum, og tóku samtals 11 lið þátt í mótinu. Hafnaði Þrymur í 2. sæti í A-riðli, á eftir Moldum-Gnúp en lið Moldar-Gnúps voru ósigraðir fyrir þennan leik og hafði fyrri viðureign þessara liða endað með 32 stiga sigri Moldar-Gnúps, 79-47. Þrymur spilaði á móti sigurliðinu í B-riðli í undanúrslitum sem voru Boot Camp og sigruðu 47-42. Moldar-Gnúpur unnu sinn undanúrslitaleik á móti Oddaflugi.

Það var því ljóst að Þrymsmenn ættu við ramman reip að draga ef þeir ætluðu að hefna ófaranna frá því í fyrri leiknum. Úrslitaleikurinn var eins og áður segir æsispennandi. Liðin skiptust á að leiða með einu stigi. Moldar komust yfir 42-41 með stigum af vítalínunni þegar 14 sekúndur voru eftir af leiknum. Þrymsmenn fóru því í sókn, eftir að hafa ráðið ráðum sínum í leikhléi, brotið var á Óskari undir körfunni eftir að hann náði frákasti. Óskar skoraði af vítalínunni og 6 sekúndur eftir. Moldar áttu skot í lokin sem geigaði en náðu að blaka boltanum í körfuna en of seint því í þann mund rann leiktíminn út við lítinn fögnuð Moldar manna. Þrymur sigraði því með einu stigi, 43-42.

Þrymur U-deildarmeistari

Efri röð: Stefán Friðrik Friðriksson, Sigmundur Birgir Skúlason, Matthías Rúnarsson, Bjarni Þór Bjarnason, Stefán Arnar Ómarsson og Haukur Skúlason. Neðri röð: Davíð Orri Ágústsson, Björn Ingi Óskarsson, Óskar Sigurðsson og Ragnar Níels Steinsson Ekki á mynd: Ingvi Hrannar Ómarsson, Aðalsteinn Arnarsson og Þráinn Freyr Vigfússon.

11 svör við “Íslandsmeistarar”

  1. þóra karen

    til hamingju með sigurinn.. :)

  2. þóra karen

    til hamingju.. :)

  3. DeeJ

    Djöfull eru þetta flottir búningar…

  4. Ingvi Hrannar

    Frábær sigur, flott mynd og frábærir búningar!!!

  5. Ragnhildur

    NojNojNoj! Til hammó með þetta, komið sífellt á óvart ;)

  6. Biggarinn

    Hrikalega er maður stoltur af ykkur!! Til hamingju með þetta strákar. Frábærir búningar

  7. DeeJ

    Biggari - Þú veist að ,,8″ er alltaf laus fyrir þig, svona ef þú verður out of contract næsta season..

  8. Biggarinn

    Djöfuls snilld væri það ef maður gæti tekið einn leik eða svo fyrir þetta “drauma” lið. Ég heyrði í 2 mönnum sem eru í liðinu eða í kringum það í dag, en annars vildi gera mig að fjarþjálfara sem er mjög góð hugmynd þar sem ég mun eflaust vera lítið á landinu næstu misserin og er ég mjög spenntur fyrir þeirri hugmynd. Ég get þá látið ykkur heyra það í gegnum webcam ;)
    En þar sem þið eruð íslandsmeistarar þurfið þið ekki að komast í evróputúr?? Hvað væri betra en að koma í heimsókn á gamlar heimaslóðir Emma, DO, Matta og Bibba??

  9. Tungan

    Til lukku !! Glæsilegt. En maður fær óhugnalegt flashback með mynd af Jón Mars og Árna Malla í appelsínugulum glímugöllum á æfingum í horninu á íþróttahúsinu meðan maður var á körfuboltaæfingum i den þegar maður sér ykkar búninga og ekki er nafnið á liðinu ykkar að skemma það, enda sami klúbbur. En hinsvegar …algjör snilld. Til lukku. DO ertu kannski Hrói Höttur í sokkabuxum ???

  10. doson

    Ég gerði þá skissu að ætla að æfa fyrir leik, og fékk þessa rosalegu harðsperrur í kálfana. deeJ lúbbaði og nuddaði lappirnar og ákvað ég að vera einnig í þessum stálbuxum til að halda á mér hita í leiknum.
    Ég held ég neyðist til að vera í þeim í næstu leikjum, buxurnar hljóta að vera til lukku!

  11. Arna

    til hamingju :D takið ykkur ótrúlega vel út í þessum búningum :D