Sumarið er komið

Flugslysaaefing á Alexandersflugvelli

Helgin byrjaði á flugvellinum. Það var flugslys við suðurenda brautarinnar kl. 13:00 og í vélinni voru 30 farþegar auk tveggja flugmanna. Systir mín ásamt vinkonum hennar voru fastar í bílflaki og voru klipptar út, þ.e.a.s. bíllinn var klipptur. En allt var þetta bara æfing. Kastljósið var á staðnum og náði myndum af þessu, hvet ykkur til að fylgjast með því í vikunni.

Mitt hlutverk var að stjórna umferð á flugvellinum og var ég í rauðum Subaru (í sólbaði) út á braut í talstöðvarsambandi við flugturninn. Turnmaðurinn veitti mér svo uppl. um flugvélar og þyrlur sem voru að koma inn til lendingar, og þurfti þá að ríma flugbrautina.

Iceland, worlds best country!

Þarna erum við svo mætt til Varmahlíðar til að sjá Óperu Skagafjarðar ásamt Sinfóníuhljómsveit norðurlands flytja La Traviata. Fáninn blakti, frumburðurinn og mamman og mæðgurnar flottar. Þess má geta að hitinn var tæpar 20 gráður utandyra og eldsveitt innandyra.

Alexandra Chernyshova

Þetta var frábær sýning. Alexandra var mögnuð og sýningin í heild mjög góð. Já ég var á fremsta bekk, alveg við sviðið og innan um hljómsveitina.

Inga Birna dancing

Inga Birna var rúsínan og dansaði hún tangó af sinni alkunnu snilld, ef ég þekki mína dansa rétt.

Skagafjörður

Hérna er svo önnur mynd frá flugslysaæfingunni tekin á leiðinni á krók… eða hvað, er þetta sinubruni?

8 svör við “Sumarið er komið”

  1. Denni

    magnað alveg… nú verður Dabbinn að búa á Króknum forever því hann einn hefur æfingu í að ríma flugbrautina ef að slys ber að höndum…

  2. Denni

    svo… verður maður að þekkja muninn á sinubruna og flugslysi… algert möst

  3. do

    ef ég þekki ekki munin á sinubruna og flugslysi, þá held ég nú vinnunni ekki lengi…

  4. Inga Birna

    Hey ég var að dansa flamenco ekki tangó!! ;)

  5. do

    æjj já eða það

  6. olson

    þið eruð bæði á villigötum. þetta er foxtrott.. ég sé það alla leið frá danmerku. það er samt varla við ykkur að sakast, algjörlega dansheft bæði tvö;)

  7. Inga

    Já ætli þetta sé ekki rétt hjá þér olson, þetta var foxari!! :Þ

  8. do

    ég býð þér upp í dans, dans lífs þíns í sumar. eftir þann dans skaltu endurmeta skoðun þína olson