Pílukast

Dartboard

Nú er komið að því! Pílukastsmótið er orðið að veruleika.

Góð upphitun verður fyrir mót, þar sem öllum þátttakendum verður gefið færi á að hita upp kasthöndina. Einnig áður en viðureign hefst fær hvor keppandi að kasta 9 pílum.

Mótið er útsláttarmót. Dregið verður úr hatti til að fá úr því skorið hver mætir hverjum í fyrstu umferð. Í úrslitaleiknum verða spilaðir 3 leikir í það mesta og þarf að sigra í 2 til að teljast sigurvegari.

Reglur:

Spilaður verður píluleikur 301, tvöfaldur inn/tvöfaldur út.
Keppandi byrjar með 301 stig og hvert “skor” sem þeir gera með þrem pílum dregið frá þeirri tölu sem þeir eiga eftir, þar til leikmaður á 0 stig eftir.

Keppandi þarf að hitta í tvöfalda í upphafi og í lok leiks. 21 tvöfaldur reitur er á spjaldinu, ytri hringurinn á spjaldinu og miðjan (sem gefur 50 stig).

Leikmaður getur ekki byrjað að draga frá fyrr en hann hefur hitt í tvöfalda reit á spjaldinu fyrst.

Til að vinna leik verður að hitta í tvöfaldan reit. Ef leikmaður fer niður fyrir núll springur hann og er hann þá búinn með sína umferð. En í næsta kasti skal hann hefja leik með sömu tölu og hann átti eftir fyrir síðasta kast.

Þegar leikmaður hefur náð þeim árangri að eiga 0 stig eftir, með því að hitta tvöfaldan þá hefur hann unnið leikinn.

Eru ekki allir hressir með þetta, þetta skýrir sig sjálft

6 svör við “Pílukast”

  1. olson

    ég skildi þetta ekki. ertu til í að fara yfir þetta aftur

  2. do

    við skulum við bara reyna að hitta í miðjuna, það er einfaldast. fyrstur að hitta 10 sinnum í miðjuna vinnur

  3. Doninn

    á ekki að koma með fréttir um sigurvegarann

  4. do

    sigurvegari mótsins jólin 2006 var kussmann jónsson

    til hamingju kussi kuss

  5. Lilla

    maður var nú lipur með pílurnar þarna á 2. í jólum verð ég að segja.. en annars þá þakka ég fyrir gott teiti !
    myndir frá teitinu á síðunni minni !

  6. do

    takk fyrir komuna,
    ætla að skoða myndir núna…