Þetta er fyrir þig Remo!

Fór með hinum krökkunum í Nýprent í ferð uppá hálendi, á stað sem heitir Laugafell. Að keyra þangað tekur um 4 tíma á fjallafeppa, en ég held að po-inn myndi ekki hafa það. Á Laugafelli er að finna nokkur hús og staðarvörð og uppsprettu heits vatns. Heita vatninu er safnað saman í laug sem sem við skelltum okkur í.

Á leiðinni til baka björguðum við ferðamanni sem hafði gengið allan daginn í leit að hjálp eftir að hafa sökt bílnum sínum í á. Þessar 2 fréttir hér fyrir neðan birtust á Skagafjördur.com og vippaði ég þeim yfir á ensku svo þýski ferðamaðurinn gæti lesið þær. Þýðingin er næstum orðrétt, svo hann geti borið greinarnar saman.

Lokad